29. des !
Sæl :) jæja Skarpi er loksins kominn heim ! Þetta var ekki fyndið lengur sko, hann var þarna í næstum hálfan mánuð :/ enda gott að fá hann heim, liggur hérna við hliðiná mér sofandi :*
Hann átti pantað flug á fimmtudaginn og ég var orðin alveg tilbúin að ná í hann en síðan hringdi hann og tilkynnti mér það að það væri búið að fresta fluginu ! Ég varð brjáluð, ekkert smá pirrandi. Þannig ég fór bara í fýlu og gerði ekkert um kvöldið nema vera í tölvunni. Hann komst ekki einu sinni aftur á Neskaupstað vegna veðurs þannig hann þurfti að gista á gólfinu hjá einhverjum fimmtugum kalli á Egilsstöðum sem hann þekkti ekki neitt.
Svo var hann búin að segja mér að hann ætti flug klukkan 4 eða eitthvað daginn eftir þannig ég var ekkert að stressa mig og ætlaði bara að sofa út. En svo um hálf tíu þá hringir hann og segir mér að hann sé að fara að fljúga eftir 10 mínútur ! Þannig ég hentist frammúr og gerði mig til á hálftíma og brunaði í höfuðborgina hálfsofandi :) en það reddaðist allt og við gátum farið og skipt einhverjum jólagjöfum og svona !
Vel á minnst ! Ég fékk rosalega fínar jólagjafir :) fékk milljón gjafabréf, fyrir samtals 30500 krónur ! þannig ég get farið að versla :D síðan fékk ég rúmföt, handklæði, krem&ilmi, föt og ekkert smá flottan áramóta kjól frá Skarpa og la senza nærföt :) þannig ég er bara rosalega ánægð með mitt !:*

Flottur ? :D
En ég er að spá í að vekja svefnburkuna hérna við hliðiná mér, klukkan fer að verða hálf 4 ! :)
Sjáumst !:*
Ţorláksmessa !
Hæhæ og Gleðileg jól :)
Það er reyndar bara þorláksmessa í dag en það er allt í lagi. Jólin eru á morgun og ég er varla komin í neitt jólaskap ! Er líka að fara að vinna í kvöld til 12, örugglega ein.. sem er baara leiðinlegt ! :( een ég hlakka svo til að opna pakkana :D haha alveg eins og litlu börnin, er svo forvitin :)
Mér finnst svoo skrýtið að þurfa að fara í fínan jólakjól, mála mig og laga hárið baara til að vera heima ! .. mig langar bara að vera á náttfötunum og borða pizzu á aðfangadagskvöld, opna svo pakkana í rólegheitunum og skella síðan kanski bara mynd í tækið :)
Skarphéðinn þarf að fara að drulla sér heim ! Hann er búinn að vera í viku núna fyrir austan og vill ekkert segja mér hvenær hann kemur, ég fer að halda að hann vilji bara ekkert koma heim aftur :/ ég tók til í bílnum hans í dag, ógeeðslegur.. fyllti tvo haldapoka af rusli og einn af flöskum! Og græddi reyndar 374 krónur, fann þær á gólfinu ;) en hann sagðist ekki koma heim fyrr en bíllinn væri orðinn fínn þannig núna getur hann farið að láta sjá sig :*:)
Svo er ég að fara á Bónusvideo ball 27.des með hljómsveitinni Buff :) verður á einhverjum nýjum skemmtistað sem heitir Rúbín og er við hliðiná keiluhöllinni. Opnar hálf tíu held ég og það er frítt áfengi til 12 ;) og ég má bjóða með mér 2 gestum, hver er til ?:D
En já, Gleðileg jól aftur og hafið það sem allra best yfir jólin ! :*
meikaði ekki að senda jólakort þannig þetta er eina jólakveðjan frá mér :/ ;)
18. des !
Hæ aftur, ég held að það hafi sjaldan liðið svona stuttur tími á milli blogga hjá mér :) en mér leiðist bara alveg hryllilega !
Skarpi fór austur í morgun, ég skutlaði honum reyndar til reykjavíkur í gær en svo var frestað fluginu hans aftur vegna veðurs. En þegar hann vissi það þá var ég komin heim og ég mátti ekki keyra ein í bæjinn aftur útaf því að það var svo brjálað veður ! Þannig hann gisti bara hjá ömmu sinni og flaug svo klukkan 8 í morgun. Ég meika ekki að það séu 2 vikur þangað til að hann komi aftur ! Ég held bara áfram að suða í honum að koma heim fyrir áramót ;) :*
Þessa dagana er ég vakin klukkan hálf átta til að vera með Garp, þá er mamma búin að gefa honum að borða og svo á hann bara að fara að sofa aftur.. Og hann neitar að sofa inní mínu herbergi þannig að ég þarf að drösla mér inní herbergi til mömmu og pabba og sofa í þeirra rúmi með hann í búri við hliðiná rúminu ;) svo í nótt prófaði mamma að loka búrinu hans útaf því að hann þarf að venjast því að sofa þar og hann bara vældi og vældi.. Og ég hélt að hann ætlaði aldrei að sofna aftur í morgun, vældi svo mikið :/ svo vaknaði hann aftur klukkan 9 og byrjaði að væla og svo aftur klukkan 10 ! Þá fór ég bara með hann fram. Svo lögðum við okkur aðeins aftur áðan :) svo lendi ég náttúrulega í því að þrífa upp eftir hann þegar hann pissar og kúkar á gólfið.. Við erum alveg með dagblöð á gólfinu sem hann á að pissa á en hann er ekki alveg búin að ná því og hittir aldrei á blaðið :/ Hann er samt svo sætur, ég fer að kenna honum að setjast og heilsa og svona ;) svo kann hann ekki að hlaupa, hoppar bara einhvernveginn um allt ! Geðveikt fyndið.
Það er minna en vika í jólin ! Ég er ekki komin í neitt jólaskap.. Er líka að vinna alla næstu helgi þannig að ég efast um að ég verði í einhverju jólaskapi yfir jólin. :/ svo er ég að fara í jarðarför hjá frænku minni á fimmtudaginn og eitthvað, rosa skemmtilegt svona rétt fyrir jólin ..
En ég er samt alveg eins og litlu börnin, ég hlakka mest til að opna pakkana :) hlakka ekkert til að borða jólamatinn því mér finnst hann ekki góður ..
Heyrðu prófin já, ég náði öllu nema sögu203 .. En ég vissi það reyndar alveg þannig það kom mér ekkert á óvart. Fékk bara mjög fínar einkanir í öllu hinu :)
Ætla ekki að hafa þetta lengra, læt væntanlega eitthvað í mér heyra aftur í fíinu útaf ég hef ekkert að gera.. ;)
14.des !
Hæh ! Langt síðan síðast ;)
Ekkert mikið að frétta af mér, kláraði prófin á þriðjudaginn og gekk bara ágætlega í öllu nema sögu203 en ég vissi svosem allan tímann að ég væri fallin í henni :/ rétt náði 103 þannig ég skildi bara hvorki upp né niður í 203 ! Svo er hægt að sjá inná innu eftir hádegi á mánudaginn einkanirnar, ég á ekki eftir að þora að gá :)
En við fjölskyldan vorum að fá okkur hund og hann flutti inn áðan :) 2ja mánaða ljósan labrador sem heitir Garpur ! Mesta krútt í heimi og algjör villingur, búinn að pissa á gólfið og svona :D verður stuð hjá okkur um jólin og áramótin ;)


Hann er æði ! :*
Svo fer Skarpi að fara austur bráðum.. átti að fara í dag en það var ekkert flogið vegna veðurs :) og ekki kvartaði ég ! Þannig hann veit ekkert hvort hann fari á morgun, sunnudaginn eða bara í næstu viku einhverntíman ;) svo efast ég um að hann komi heim fyrir áramótin vegna þess að öll fjölskyldan hans er fyrir austan og þau leyfa honum örugglega ekkert að koma til mín ! En ég neita sko að hann verði hvorki hjá mér um jólin né áramótin ! :/ það væri nú svolítið langt...
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, blogga líklega eitthvað í næstu viku :*!
Stelpur! Hvenær er næsti “saumaklúbbur” ?? :D
Fjörtíu&fjórir
Ég geeet ekki lært ! Er að fara í tvö próf á morgun en það er bara svo erfitt að byrja.. Svo ég fann mér bara eitthvað annað að gera.
Þetta er búin að vera hálf glötuð helgi, jólaballið var á föstudaginn og það var hundleiðinlegt. Ég var bara í engu stuði og svo voru DJ-arnir hræðilegir ! Rann líka af mér um leið og ég kom inn.. Þannig ég fór bara heim snemma og vaknaði síðan hress á laugardaginn og fór að læra. Svo var ég að vinna í gærkvöldi til 12 og skutlaði svo Sunnevu, Maren, Aþenu og einhverri stelpu á ballið með Á móti sól, ég nennti engann veginn að fara á ball. Svo fór ég bara heim og horfði á mynd, lærði svo aðeins og gat ekki sofnað fyrr en um 4 leitið.. Svo svaf ég líka ekkert smá illa í nótt, dreymdi einhvern ógeðslegan draum og vaknaði klukkan 7 og ég gat ekki hætt að hugsa um það, dreymdi að það væri einhver ógeðslegur gaur að meiða alla í fjölskyldunni minni og eitthvað ! Og líka að það keyrði líkbíll að húsinu mínu .. Ógeð. Þannig að ég var andvaka heillengi og var svo alltaf að vakna eftir það :(
En ég ætlaði að nota hérna tækifærið og afþakka allar jólagjafir frá vinum ! Vegna þess að ég ætla bara að kaupa handa mömmu og pabba og Skarpa þessi jól og þá vil ég auðvitað ekki fá frá þeim sem ég gef ekki, þá fæ ég bara samviskubit. Kanski er þetta hálf glatað en ég þarf eiginlega bara að spara pening og svona.. :/ svo er ég líka að spara þeim pening sem ætluðu að gefa mér jólagjöf ! En auðvitað býst ég við gjöf frá skyldmennum :D haha
En gvuð ég þarf að byrja að lesa eitthvað í sögu, er að fara að skítfalla í þessum áfanga ! Skil ekki baun :/
Bæjó ! :* ![]()
Fjörtíu&ţrír
Jáá hæ :) ég sit hérna í sál103 tíma og á að vera að lesa, afþví að ég er búin með verkefnið ! En ég finn mér alltaf eitthvað annað að gera þegar ég á að vera að læra. Ég er líka að vinna í því að setja myndir inn á síðuna :) verður vonandi komið í kvöld ef talvan spýtir aðeins í lófana ! Gæti ekki gengið mikið hægar. Ég ætlaði að setja myndir úr stelpupartýinu sem var heima hjá mér fyrir ballið síðasta og svo nokkrar myndir síðan ég og Skarpi fórum í bústað :) Þið verðið bara að fylgjast með hvort að þær komi ;)
En já það var sem sagt ball þar síðustu helgi og ég hélt smá stelpupartý sem var klárlega eitt skemmtilegasta partý sem ég hef verið í :D! fullt af píkjuskrækjum og það var farið í “ég hef aldrei” þar sem ýmislegt komst upp á yfirborðið ! :) og svo var dansað og dansað og dansað ! En ballið fór nú bara eins og það fór.. Kannski ekkert voðalega mikið að segja frá :) eða ég ætti allavega bara að láta aðra um að segja frá því. Við stelpurnar keyptum okkur Tekíla og ég endaði eiginlega bara ein í því, fannst þetta rosa sport sko ! Með sítrónurnar og saltið og svona, ægilega töff :) En já ég tók svona milljón og eitt staup og enntist ekkert voðalega lengi á þessu balli ! Drösslaði Skarpa með mér heim bara :) örugglega hundleiðinleg.
Æji núna er ég reið.. Ég var búin að bíða í óratíma eftir að einhverjar 10 myndir myndu loksins vera búnar að sendast inná síðuna, svo voru þær loksins komnar, en neeei.. Svo voru þær ekkert inná síðuni ! Og ég þarf að byrja uppá nýtt.. Pirrandi.
Heey ég fæ bráðum hund ! Lítinn og sætan Labrador sem heitir Garpur :) við erum búin að fara og kíkja á hundana og velja einn, erfitt að velja bara einn ef manni langar í alla ! :) og líka svo langt þangað til að við fáum hann, 16.des !! Get ekki beðið sko :D
En jæjja ég er farin að vaða úr einu í annað.. ætla að halda áfram að fikta í þessum myndum. :)
Og jáá..
Ég auglýsi eftir að fá lánaða bókina Grafarþögn eftir Arnald Indriða ! Hver á ?
Og hver býður sig fram í að halda stelpupartý fyrir jólaballið ? Er ekki stemmning fyrir því stelpur ? :D
Fjörtíu&tveir

Takið eftir þessum lengst til hægri ! oog þessum næst lengst til vinstri, alveg að troooðast með :)

Blindur greyið :)

Strákurinn sem að á mömmuna held ég með einn lítinn. ;)
En ég á ekki fleiri, langaði bara að sýna ykkur hvað þeir eru sætir ! :D
Fjörtíu&einn
Hahæ :) ég sit bara uppí rúmi með tölvuna að horfa á friends, nenni ekki að gera neitt .. Er meira að segja með bílinn hans Skarpa en nenni bara eiginlega ekki á rúntinn. Heyrðu jáá ég er komin með bílpróf ! :D ótrúlega gaman, skrýtið samt fyrst, þá fannst mér ég bara vera að stelast eða eitthvað ;) En er svona að venjast núna, búin að vera með bílpróf í 2 vikur og er ekki ennþá búinn að klessa á ! Magnað..
Miðannafríið er að klárast :( skólinn byrjar aftur á morgun, er svo ekki að nenna því ! Ég var sko bara að drepast úr leiðindum áðan þegar ég byrjaði eitthvað að læra. Er búin að vera í fríi núna í 5 daga; enginn skólin, engin vinna, ekkert að læra, enginn æfing og bara ógeeeðslega næs ! Ég er búin að gera bókstaflega ekki neitt..
Á föstudeginum fórum við Skarpi í bæjinn, ég ætlaði að versla ekkert smá mikið, ætlaði sko bara að missa mig ! En neeei.. ég fann ekki neitt! Ég dró hann með mér án gríns í allar búðir í Kringlunni og ég fann mér ekki einaa flík ! Var svo pirruð.. Endaði bara á því að fara í La Senza og kaupa mér nærföt svo ég yrði ánægð :) fyndið hvað maður finnur aldrei neitt þegar maður ætlar sér að versla en svo ef maður er bara aaaðeins að kíkja og er ekki einu sinni með pening, þáá gæti maður gjörsamlega keypt alla búðina !
Svo keyrðum við bara heim aftur, lögðumst aðeins upp í rúm og horfðum á hellisbúann. Sem er by the way ekki eins fyndinn og allir segja ! Gvuð, ég hafði sko aldrei séð hann og ákvað að horfa loksins á þetta fyrst öllum finnst þetta svona brjálæðislega fyndið. Svo hló ég bara ekki neitt !
En síðan keyrðum við aftur í bæjinn til að fara í bíó á frumsýningu á einhverri leiðinlegri mynd, fengum frítt þannig að það var í lagi, þetta er eitthvað sem að Bónusvideo kallarnir eru að bjóða starfsmönnum upp á. Fórum á Mr. Woodcock eða eitthvað sem að byrjaði klukkan 00:30 ! Glatað..
Á laugardaginn gerði ég svo voðalega lítið, fór bara um kvöldið með Skarpa í partý til Helgu og Sturra. Við vorum bara 5; ég, Skarpi, Helga, Sturri og Gummi. Það var geðveikt gaman sko, fórum í einhvern drykkjuleik og svona, þau eiga líka krúttlegasta hund í heimi :) lítill Chihuahua stelpa sem heitir Dama. Við vorum heima hjá þeim til svona hálf eitt en þá kom Siggi Rúnar og skutlaði okkur í afmælið til Marinós, þar var fullt af fólki, rosa gaman :)
Sunnudagurinn var síðan bara letidagur, vöknuðum klukkan 3, vorum bara á náttfötunum, pöntuðum pizzu og leigðum síðan mynd um kvöldið…Voða kósý :)
Ég fór síðan í andlitsmeðferð í dag á Kas, nudd og svona, það var geeeðveikt.. mm hvað það var gott, mæli klárlega með þessu !
En jájá .. Ég er að spá í að horfa bara aðeins meira á Friends og eitthvað :)
Sjáumst í skólanum á morgun, úútsofinn og fersk ! ;)
Fjörtíu
Ég ætlaði bara aðeins að láta vita af mér ;) búin að vera eitthvað voðalega upptekin upp á síðkastið. Það er náttúrulega skólinn og þar af leiðandi fuullt af lærdómi ! Svo vinnan svona af og til og svo var ég að byrja í Fit-Box, sem er ekkert smá gaman ! Drulluerfitt en það er bara fínt :)
Annars var ball síðasta föstudag, með DJ Óla Geir og einhverjum öðrum. Það var ekkert lítið gaman á þessu balli ! Ég held bara að þetta hafi verið eitt skemmtilegasta ball sem ég hef farið á í langann tíma ! :D Byrjuðum bara á að panta okkur pizzu, ég, Sunneva, Eyrún og Steinunn, heima hjá Sunnevu. Sátum svo í smá tíma þar og spjölluðum, fórum í “ég hef aldrei” og svona. Haha ekkert smá gaman ! Síðan skelltum við okkur bara í partý hjá Vidda, fullt af fólki þar :) Svo lá leið okkar á ball ! Og ég dansaði svo mikið að ég var orðin kófsveitt !
Ég vil aftur svona stelpudjamm, til í það stelpur ? :D
Haldiði svo ekki bara að ég eigi afmæli á sunnudaginn :) Ég hlakka svo til, það er svo gaman að eiga afmæli ! Svo er það bara bílprófið næsta þriðjudag ef ég næ verklega :/ efast stórlega um það,, ég fór í ökutíma í dag og tókst að drepa á bílnum svona milljón og einu sinni ! Skammaðist mín svoo :/
En svo ætlar maður að reyna að komast inn á Októberfest á laugardaginn ! Veeerð að gera eitthvað fyrst ég á afmæli :) Var samt að frétta að það ætti að vera eitthvað voðalega ströng gæsla :/ og ég er ekki að tíma að kaupa miða á ball fyrir 2500 og vera síðan bara hent út ! En ég sé til :)
Svo er hárið á mér að fara í gegnum smá breytingar núna :) Haha það koma alltaf svona tímar þegar ég er bara komin með ógeð á hárinu á mér og veerð bara að breyta til ! Í gær litaði ég það svona frekar dökkt, reyndar dekkra en ég ætlaði en það er samt bara fínt. Svo er ég að fara í permanent á föstudaginn ! :D get ekki beðið ! Verður aðeins breyting vona ég ;)
En ég er að spá í að slútta þessu bara núna, ætlaði bara aðeins að segja hæ :)
Sjáumst ! :*
ţrjátíu&níu
Heyrðu ég held bara að ég ætti að fá einhverskonar verðlaun fyrir að vera svona duglegur bloggari :) hellingur búin að gerast síðan ég bloggaði síðast.
Vil byrja á því að óska henni Mareni innilega til hamingju með 17 ára afmælið og ég vona að þér batni fljótt elskan ;*!
En skólinn er byrjaður, og á milli þess sem ég er ekki í skólanum er ég í vinnunni eða heima að læra. Æðislega gaman. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég er ekki alveg að nenna því. Væri eiginlega bara til í að vera að vinna í einhverri góðri vinnu í staðinn :/
En þaað er víst bannað, ég verð bara að sætta mig við þetta.
Busaballið var þarsíðustu helgi, mér fannst það bara alveg ágætt. Þetta var ekkert skemmtilegasta ball sem ég hef farið á en það er kanski bara útaf því að það rann svo fljótt af mér :/ En allir aðrir voru bara alveg á rassgatinu ! Án gríns.
En núna um helgina vorum við Skarpi bæði í fríi þannig að við ákváðum að leigja okkur bústað, leigðum geðveikt kósí bústað í Svínadalnum á 8500 krónur yfir helgina. Það var frí í skólanum á föstudaginn þannig að við vöknuðum bara snemma, fórum í ljós og svo heim að pakka. Fórum svo í Bónus að versa í matinn, og brunuðum svo bara í Svínadalinn. Vorum komin um 3 leitið og lögðumst bara uppí sófa og horfðum á Friends. Svo eldaði ég pítsu, mér fannst hún ekkert spes en Skarpa fannst hún geðveik og kláraði bara alla ! Svo var bara farið í pottin um kvöldið með bjór og Passoa og við höfðum það voða næs.
Á laugardeginum fórum við í smá göngutúr og svo komu tengdó í heimsókn, Maggi ætlaði víst að fá einhverjar vöfflur sem voru ekki til :) En við gáfum þeim bara kók og snakk. Ægilega huggulegt ;)
Þegar þau fóru horfðum við bara á meira Friends og átum snakk, við keyptum sko fimm snakkpoka ! Og það var étið þá alla :/ bollur? Neinei :)
Svo ætluðum við að fara að grilla en neih, var ekki grillið bara bilað, eða einhver takki virkaði ekki þannig að ég þurfti að hlaupa yfir í næsta bústað í miðjan matartímann hjá fólkinu og fá lánaðan kveikjara. Vandræðalegt. En þegar við komum grillinu loksins í gang grillaði Skarpi rosa gott kjöt og svo borðuðum við við sjónvarpið útaf því að sumir þurftu að horfa á landsleikinn :* svo ákvað ég bara að fara að læra afþví að mér leiddist svo á meðan þessi leikur var í gangi, var reyndar búin með 2 bjóra en þaað var allt í góðu. Svo horfðum við bara á meira Friends og svona. Ég veit ekki hvaað við horfðum á marga þætti, kláruðum allavega 6. seríu og nokkra í viðbót.
Svo á sunnudeginum lágum við uppí rúmi til sirka hálf fimm, fórum þá í sturtu og í smá göngutúr. Svo grilluðum við pulsur og keyrðum heim, vorum komin um 9 leitið.
Geeðveikt róleg helgi og bara ekkert smá kósí :*
Við tókum nokkrar myndir, hendi þeim kanski inn við tækifæri :)
Farið vel með ykkur <3 
Fín á Busaballinu ? :) ;* Haha
